Fundur nr. 2
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 23:00
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð
a) Breyting á vistunartíma.
Lögð var fram tillaga frá leikskólastjóra um breytingu á vistunartíma leikskólabarna þannig að foreldrar geti sótt um leikskólapláss til kl. 14:30 eða kl. 15:30 auk núverandi úrræða.
Samþykkt samhljóða að hafa sveigjanlegan skráningartíma.
b) Lágmarks viðmið fyrir opnun deilda á skráningadögum verði fimm börn.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Arnar, Guðjón og Bjarney sitja hjá.
Bókun Fjölskylduráðs: Fjölskylduráð ræddi tillögurnar og fól starfsmanni að vinna málið áfram í samráði við leikskólastjóra og leggja fram frekari upplýsingar um áhrif breytinganna.
Bjartur mætti á fundinn og kynnti starfsemi Þjónustumiðstöðvarinnar, helstu verkefni hennar og þá þjónustu sem þar er veitt. Fara þarf í vinnu við endurnýjun ljósastaura m.a.
Verið að bíða eftir svörum frá Securitas vegna eftirlitsmyndavéla við leik- og grunnskóla.
Farið var yfir starfsáætlun fjölskylduráðs fyrir kjörtímabilið. Rætt var um helstu áherslur ráðsins á komandi misserum, meðal annars málefni barna og fjölskyldna, þjónustu við eldri borgara, forvarnir og lýðheilsumál.
Lagt fram til kynningar.
Sandra Konráðsdóttir, Eyrún Guðbergsdóttir og Arnar Ingólfsson verða fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.
Fyrsti fundur öldungaráðs verður 21. október 2026.
Fyrsti fundur verður haldinn 22. okt 2026. Starfsmanni falið að vinna málið áfram