Menn­ingar- og atvinnu­mála­nefnd

Fundur nr. 3

Kjörtímabilið 2026—2030

14. október 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð

Fundur nr. 3, kjörtímabilið 2026-2030, í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 14. október klukkan 08:30.

1. Erindi#1-erindi

  • Aust­urbrú

    Inn á fundinn tengdist um fjarfundarbúnað framkvæmdastjóri Austurbrúar, Bryndís Fiona Ford, og var farið yfir með henni m.a. mögulega aðkomu Austurbrúar að atvinnuþróunarverkefnum á Vopnafirði s.s. verkefnið Brothættar byggðir í samstarfi við Byggðastofnun og Austurbrú. Sveitarstjóra falið að vinna verkefnið áfram

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Menningar- og atvinnumálanefnd felur sveitarstjóra að vinna verkefnið áfram og skoða möguleika verkefnisins Brothættar byggðir og leggja fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

    Samþykkt samhljóða


  • Viðburð­ar­hópur

    ​Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að starfa í viðburðarhóp fyrir sveitarfélagið. Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:

    Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að Sara Elísabet Svansdóttir og Selja Janthong haldi utan um helstu viðburði sveitarfélagsins og felur formanni nefndar að boða þær á fund með nefndinni.

    Samþykkt samhljóða.


  • Sprett­hópur í atvinnu­málum

    ​Fyrir liggur erindi frá sveitarstjórn um að nefndin skipi 5 fulltrúa í sprett hóp um atvinnumál í Vopnafirði, þar sem stefnt er að því að ráða tímabundinn verkefnastjóra til greiningar á tækifærum í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á Vopnafirði. Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:

    Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að Linda Björk Stefánsdóttir, Helga Kristín Tryggvadóttir, Helgi Þorsteinsson, Rögnvaldur Þorgrímsson og Andreas Ljungberg skipi hópinn og felur sveitarstjóra að útbúa erindisbréf og boða til fyrsta fundar.


  • Launa­kostn­aður

    Farið var yfir verkefnið og áframhaldandi vinnu. Lagt fram til kynningar.

  • Viðburða­da­gatal

    ​Fyrir liggur viðburðardagatal fyrir komandi ár og það sem eftir er þessa árs.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
    Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að tendrun jólatrés verði föstudaginn 27.nóvember og felur sveitarstjóra að birta komandi viðburði á dagatali hreppsins.

    Samþykkt samhljóða.


  • Styrk­veit­ingar

    ​Fyrir liggja dagsetningar af þeim styrkjum sem sveitarfélagið hefur kost á að sækja í það sem eftir er árs.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
    Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna umsókn og sækja um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða varðandi bætt aðgengi að Selárlaug.

    Samþykkt samhljóða.


2. Önnur mál#2-onnur-mal

  • Önnur mál
    A. Nefndinni barst beiðni um skoðun þess að stofnaður yrði
    stýrihópur sem tengist bókasafni sveitarfélagsins. Sveitarstjóra
    falið að vinna málið áfram í samráði við fjölmenningarfulltrúa og
    stofnun hópsins vísað til fjárhagsáætlunar.

    B. Dagar myrkurs fara fram 26.október – 6.nóvember, unnið er að
    dagskrárgerð og auglýst hefur verið eftir áhugasömum
    einstaklingum og fyrirtækjum til að taka þátt.

    C. Kaupvangur - rætt var um að vinna þurfi hraðar að því að efla
    starfsemi í húsinu.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:25.